Bloggið'ennar Stínu

Velkomin(n) í kjaftæðið

04.10.2006 10:32:49 / stina

Ný síða eða hvað?

Prófið að klikka á www.missstina.bloggar.is og segið hvað ykkur finnst...

» 0 hafa sagt sína skoðun

29.09.2006 22:31:55 / stina

Heppin yfir að vera á lífi eftir að "ekið" var yfir mig

Jæja hæ hæ öll sömul. Ýmislegt búið að vera að gerast í mínu daglega lífi. Fór heim í sveitina um seinustu helgi og lét Brodda vinna soldið fyrir sér fyrir mömmu og pabba:lol: Að launum fékk ÉG að kaupa mér langþráða sjónvarpsskápinn frá IKEA (reyndar voru þetta laun fyrir aðra vinnu sem ég hef unnið fyrir þau í garðyrkjustöðinni og Broddi fékk annað). En jæja ég fór sem sagt í IKEA til að sækja skápinn, fékk voða sætan strák til að bera hann út í bíl fyrir mig;);) Síðan leist honum svo helvíti vel á það að ég væri svona mikil skvísa á Benz. Ég nýtti mér það tækifæri og beytti öllum mínum kattatöfrum og reyndi að selja dúddanym bílinn þarna á staðnum:haha: Honum leist bara ekketr svo illa á það en þyrfti helst fyrst að geta selt kakadúann sinn á 400 þús:| Já já don’t ask.

 

Þurfti síðan að eyða kröftum í að bera hann inn og síðan fór mín og eyddi öllu kvöldinu í að koma skápnum saman. Fyrst var það bara voða gaman, svona eins og byggja úr lego eftir leiðbeiningum, en síðan komst ég að því að ég hef alls enga þolinmæði í að skrúfa skrúfur með skrúfjárni:whut: Fór því soldið seint að sofa, en þegar ég vaknaði morguninn eftir og kom fram þá ætlaði ég varla að trúa mínum eigin augum......frammi í forstofu var annar sjónvarpsskápur alveg eins og minn:| Ég var ekki alveg að fatta hvað var í gangi þarna í morgunsárið. Það tók mig smá tíma til að fá botn í málið...hafði hún mamma ekki verið svo góð og ætlaði að koma mér á óvart með að kaupa skápinn og var síðan á ferðinni um nóttina og henti honum inn:| Æ Æ ég þurfti því að fara aðra ferð í IKEA og skila þeim skáp. En hinn skápurinn er kominn upp og prýðir stofunu aldeilis vel:haha:

 

Fór síðan í 10-11 um daginn og það er alveg merkilegt hvað ég lendi alltaf í e-ju furðulegu þegar ég fer í einhvers konar 10-11 verslun. En ég var næstum hlaupin í gegnum rúðu þegar mér brá svo við að brunavarnarkerfið fór í gang í versluninni:^)

Síðan gerðist stórslysið. Ég var að skokka í Laugardalnum og kom að langri og brattri brekku. Leið mín lá upp hálfa brekkuna og síðan ætlaði ég þara að beygja af leið. En harkan var svo mikil að ég ákvað að taka sprett upp brekkuna. Þegar ég var komin að staðnum þar sem ég ætlaði að beygja stoppaði ég augnablik til að jafna mig á mjólkursýrunni. Verður mér e-ð litið upp í brekkuna og sé þar alveg skelfingu losti hjólbarða koma rúllandi á fleygiferð niður brekkuna og stefnir að mér8| Mér gafst ekki rúm til að hugsa og áður en ég vissi af hafði hann keyrt á mig og yfir mig endilanga. Ég ætlaði varla að trúa þessu og stóð þarna með bremsufar á enninu eftir dekkið og horfði á eftir því rúllandi niður í Laugardal:(

Ég hef verið að spá í að leita upp öryggismálanefnd skokkara í Laugardalnum, því fyrir utan þetta atvik þá hef ég orðið fyrir árás gæsar og blindast við að fá flugur í bæði augun:evil:

~*Stína*~

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.09.2006 20:49:58 / stina

Við Íslendingar erum alltaf jafn hjálpsamir!

Tveir íslendingar eru úti í sveit að aka og sjá bíl fastan úti í kanti.
Þeir ákveða að hjálpa og fara út úr bílnum.
Þetta eru útlendingar og kunna íslendingarnir lítið í ensku en tekst að
spyrja: "Dú jú vant help?"
Útlendingarnir svara " no no this is ok"
Íslendingarnir vilja endilega hjálpa og gefa sig ekki og segja: Jes ví help 
Útlendingarnir: No no this is ok
Íslendingarnir: Jes jes nó vesen - ví help jú
Þeir ná í reipi í bílinn sinn
til að freista þess að draga bílinn - í versta falli að ýta honum upp á
vegkanntinn aftur.
Útlendingarnir: What are you gonna do?
Íslendingarnir:First ví reip jú - ðen ví ít jú
:lol: ~*Stína*~


» 4 hafa sagt sína skoðun

18.09.2006 18:39:32 / stina

Réttir

Það urðu réttir í Skaftártungu sem bar sigur úr bítum. Já þangað skellti ég mér um helgina. Fórum í pottinn og rólegheit á föstudagskvöldinu, en á laugardeginum var aldeilis tekið á því. Allir kepptust um að draga í dilka, syngja, fá sér öðru hvoru í nefið og einn og einn sopa;) Ég dró hverja rolluna af fætur annarri í sinn dilk...síðan var kappið orðið svo mikið að ég tók meira að segja tvær í einu, reyndar bara í eitt skipti:$ lagði ekki í það aftur. Að réttum loknum þá rákum við féð heim í æðislegu veðri...með besta veðrinu sem hefur bara komið í ár. Þegar heim var komið fengum við dýrindis saltkjöt og með því. Síðan var bara slappað af þar til réttarballið byrjaði um kvöldið. Hljómsveitin Nefndin frá Egilsstöðum lék þar fyrir dansi og var m.a. dansaður kokkur.

Sunnudagurinn fór aðallega...eða bara í að liggja inni í leti, enda var óvært úti vegna rigningar:S

 

 



Heyrði þessa æðislegu setningu um helgina: Upptökumaður var e-rs staðar úti í móa að mynda e-ð á filmu. Hann hitti síðan á bónda í sveitinni og ákvað að spyrja hann að einu sem hafði verið mikill hugarbyrði fyrir hann. ,,Hvaða atferlisfræði er á bak við það að kindurnar hópa sig alltaf  3 og 3 saman?”:lol:

~*Stína*~

 

Rétt rolla fundin



 

Þá er að koma henni í sinn dilk



 

Og það varð bara að draga og ýta



 

Síðan lagðist hún bara niður þegar hún kom að hliðinu:|



 

Fleiri myndir á Myndir Haust




» 1 hafa sagt sína skoðun

14.09.2006 23:01:23 / stina

Hvað á ég eiginlega að gera um helgina?

Helgin alveg að koma...og ég er ekki búin að skipuleggja hana...HJÁLP:!:

Í boði er sem sagt:

  1. Að fara austur í réttir og á réttarball
  2. Fara til Eyja með hjúkkunemum og skella sér á Sálarball
  3. Vera í bænum og fara kannski í afmæli og ýmis boð og partý...tilboðum rignir inn.

Þetta er nú meira situationið...hvað á ég að gera:(

Annars varð ég fyrir árás af geitungi í skólanum um daginn...hann hjólaði gjörsamlega í mig og liggur við að það sjái á mér eftir þessa árás8| Er búin að eyða gíga miklum tíma í e-ð ofur einfalt hópverkefni, búin að æfa mig í að sprauta alla á spítalanum sem sprauta má...og síðan var Lífeðlisfræðikennarinn með kvennmannsrödd í tíma í dag...en hann er að öllu jafna karlmaður:lol:

~*Stína*~


» 0 hafa sagt sína skoðun

06.09.2006 19:07:34 / stina

Bláber með rjóma

 

Í berjamó

Jæja þá er haustið að ganga í garð og ég með fullan munn af bláberjum, og slefandi af rjóma...ok ég skal hlífa ykkur við lýsingunum:lol: 
En í ágúst þá fór ég á austurland í ferðalag. Aðalástæða roadtrippsins var að við ætluðum að fella eitt stykki hreindýr. Í ferðinni voru ásamt mér: Broddi, Daði kokkur og það var ann sem fékk leyfið fyrir hreindýrinu,og Unnur kærastan hans. Fyrstu nóttina gistum við á bænum Felli í Berufirði. Þar bjuggu langamma og –afi Unnar, en núna nota afkomendur bæinn sem sumarhús. Það skemmtilegasta við húsið er að því er haldið eins og þegar langamman bjó þar, með öllu dótinu hennar og allt. Sjáið myndirnar:o

Við keyrðum síðan austur að Húsum sem er inn af Löginum (við Egilstaði). Þar tók á móti okkur Hákon Aðalsteinsson sem var guidinn okkar í hreindýraveiðinni. Við fórum upp á Fljótdalsheiði og þar var svo mikið örtröð af skyttum að það lá við að maður þyrfti bara að taka númar og bíða í röð8| En síðan hófst eltingarleikurinn. Við fundum hjörð og fórum að elta hana, en þá kom í ljós að önnur skytta var að elta hana og náði að fella stærsta tarfinn í þeirri hjörð, en við vorum líka með leyfi á tarf. En við héldum okkur samt við þá hjörð og náðum að fella tarfinn sem var næst stærsti á eftir hinum. Við Unnur létum strákana um hlaupin, læðast að hjörðinni og fella dýrið. Við vorum alltaf á eftir á bílnum, tilbúnar ef á þyrfti að halda;) Síðan keyrðum við að dýrinu sem var skellt á kerru eftir að innyflin höfðu verið fjarlægð og voru skilin eftir fyrir krumma. Síðan keyrðum við að Húsum aftur þar sem var gert að dýrinu, það fláð og hengt upp í kæli. Við Unnur fengum það verðuga verkefni að flá fæturnar og fengum að hirða það skinn, en það er soldið skondið að það er í laginu eins og heilt hreindýraskinn, bara í miniútgáfu.

Tarfurinn nýfelldur


Eftir allt hreindýraumstangið þá héldum við meira norður á leið að bænum Felli í Finnafirði í Bakkaflóa. Þar hafði Daði verið í sveit í æsku og sýndi okkur allt sem hann hafði uppgvötað þar. Við fórum á minnkaveiðar, í berjamó, lögðum net í sjóinn og fengum lax, fórum á gæsaveiðar...en fengum enga gæs heldur 4 endur:D, veiddum sel og lærðum að gera að honum. Síðan var bara heljarinnar matarveisla þar sem öll villibráðin var matreidd:) Við fengum okkur síðan bíltúr út á Langanes. Þetta átti að vera smá bíltúr sem endaði nánast með dagsferð:S Bíllinn bilaði og enginn tjakkur var í bílnum:( En strákarnir dóu ekki ráðalausir og var hann ,,tjakkaður upp” á rekavið8| Þaim tókst að gera við bílinn svona til bráðabirgða og við héldum áfram för okkar. Fórum alla leið út á Font (endinn á Langanesinu) eftir versta veg í heimi:whut: Þar er Langanessviti og veðurathugunarstöð og skammt frá sáum við eitt stærsta súluvarp á landinu. Fórum síðan í draugaþorpið Skála, en þar var áður útgerð. Við Broddi héldum síðan heim á leið með einnar nætur stoppi á Vopnafirði hjá ættingjum Brodda.

 Draugaþorpið að Skálum

 Núna um helgina var síðan Hólahátíð sem Elva og Arnar héldu sem lokahóf í Hólaskjóli. Þar var allt flæðandi í bjór og brennivíni auk Chupa Chops sleikjóum8| og hákarli:S og meira að segja ég fékk mér:!: Svo mikil hetja;) Á hátíðinni var brenna, brekkusöngur, ball og harmonikkudansleikur með danskortum. Þau virka þannig að maður átti alltaf að dansa við nýjan og nýjan strák við nýtt og nýtt lag og láta þá síðan kvitta fyrir dansinn. Daginn eftir var síðan hjálpast við að taka til og gera allt klárt fyrir veturinn.

Brennan + smá sinubruni:$

Svo er ég bara byrjuð í skólanum að nýju. Finnst samt vera 2 dagar síðan sumarfríið byrjaði:| Vá hvað þetta sumar flaug. En í gær kom að því...ég lærði að sprauta:!: Við áttum að æfa okkur á hvor annarri og allt gekk mjög vel, enginn svimi né yfirlið hrjáði mig, tel þetta allt vera þroskamerki:haha:, þar til...áttum að æfa okkur í að stinga í vöðva og ég fékk sprautu í bossann:^) Það gekk bara vel nema að þegar nálin var dregin út úr mér (sko heavy þykk nál) þá hætti bara ekki að blæða og þetta var bara svona hjá MÉR:!: Typískt:cry: Blóðið fossaðist út og mér leist nú ekkert á þetta og fór því til kennarans og lét hana kíkja á þetta. Heyrðu þá sagði hún:,,Já skrítið, ég hef nú bara séð þetta gerast hjá óléttum konum”8| Ekki bætti þetta nú líðan hjá mér það sem eftir var dagsins. En því miður kæru vinir þá verður ennþá einhver bið á því að ég fari að dreifa mér og þið verðið bara að gera ykkur gott með eina útgáfu af mér:lol:

 Fallega ég;)

P.s. Myndir úr hreindýraferðalaginu og frá Hólahátíð http://public.fotki.com/stina8

~*Stína*~


» 7 hafa sagt sína skoðun

22.08.2006 23:00:01 / stina

Myndir til afþreyingar

Jæja ég er að fara í ferðalag í nokkra daga á austurland. Aðalmarkmiðið er að fanga hreindýr, en síðan erum við með fullt annað í bígerð. Segi ykkur síðar frá því hvernig þessi ferð heppnast.

Nennti loksins að henda inn myndum. Þetta eru alveg bunki af myndum síðan í sumar: Frá því að Danirnir voru í heimsókn, brúðkaup Önnu frænku og Gulla, og frá Laugavegsferðinni (sjá ferðasögu í færslunni á undan);)

Þið hafið þá allaveganna e-ð til að dunda ykkur við á meðan ég er í burtu:lol:

http://public.fotki.com/stina7

~*Stína*~


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.08.2006 20:37:30 / stina

Sigraði Laugaveginn á 2 dögum...hvað er næst?

Hef verið stödd á Kirkjubæjarklaustri síðastliðna viku. Réð mig í 5 daga kaupavinnu á Hóteli staðarins, sem er nú ekki dónalegur vinnustaður:D Hef verið að vinna minnst 12 klst á dag þannig að eins gott að buddan verði nú búttuð eftir þennan mánuð. Er sem sagt hætt að vinna 100% vinnu á Landspítalanum, sem btw varð 120% vinnaÖÖ, og er komin niður í 20% vinnu þar sem ég ætla að hafa með skólanum. Skólinn byrjar 31. ágúst, komin með stundatöfluna og lýst bara vel á.

Um verzló þá gekk ég Laugaveginn ásamt Brodda.Við töltum þetta á 2 dögum, föstudegi-laugardags, og Broddi rétt gat haldið í við mig, en missti síðan alveg sjónar af mér þegar ég brunaði á rassinum niður brekku fyrir ofan Þórsmörk í grenjandi rigningu...það var ekki alveg samkvæmt planinu:^) Annars fengum við bara fínt veður, hlýtt en skýjað. Gengum úr Landmannalaugum í Álftavatn á 8 tímum með 1 tíma pásu í Hrafntinnuskeri og nokkrum myndavélapásum. Fengum gistingu á loftinu hjá Fanneyju skálaverði þar. Okkur leist síðan ekkert á blikuna morguninn eftir þar sem algjört slagveður var útifyrir. Við kappklæddum okkur í allan þann fatnað sem við höfðum meðferðis og lögðum þannig í hann. Eftir fyrstu hæðina vorum við komin úr öllu...svona hérum bil. Þessi seinni dagur tók okkur rúmar 11 klukkustundir, enda lengri leið (30km í stað 21km fyrri daginn), ásamt óbrúuðum ám sem þurfti að vaða og N.B. þá óð ég jökulá og tempraturið mitt fór eiginlega bara niður fyrir frostmark. Við komum við í Hrafntinnuskeri og stoppuðum í klukkutíma í Botnum (Emstrum). Leið seinni dagarins var þó mun auðfarnari því meira var um brattar brekkur þann fyrri. Við lentum síðan í Langadal í Þórsmörk um kvöldið, ég með töluvert forskot á Brodda eftir sallíbununa niður brekkuna;) Í Þórsmörk tók Sonja á móti okkur, við komust í bestu sturtu ever og steinrotuðumst síðan.

Við eyddum síðan mest öllum sunnudeginum hjá henni Sonju okkar og fylgdumst með öllum bílunum sem festu sig í Hvann- og Krossá8| Fórum síðan á Klaustur, með viðkomu í grillveislu og fyrirpartý hjá Elvu og Arnari í Hólaskjóli. Síðan endaði þetta allt með að við skelltum okkur á sveitaball í félagsheimilinu á Klaustri:D

 

Annað í fréttum: Er að ég er búin að kaupa mér bara rosalega flottan hornsófa í stofuna á Teignum...þannig að nú er nóg af sætum fyrir alla.

Fór á Footloose...það var bara hin hreinasta góða afþreyging;)

Síðan sorgarfréttin: 6 ára, upplitaði og augnlausi gullfiskurinn minn dó í seinustu viku...búhú:cry: hans verður sárt saknað. Það sem hæst ber að nefna úr æviminningum hans er að hann lék eitt aðalhlutverkið í leikristinu Ef ég væri gullfiskur, hjá leikfélagi Umf. Stafholtstungna og einkabróðir hans framdi sjálfsmorð fyrir 6 árum síðan:(

Fór norður á ættarmót og tryggði að merin mín fengi að fara undir heimsmeistarann Stála frá Kjarri, sem sló svo eftirminnilega í gegn á Landsmóti hestamanna í sumar;)

Síðan er svo margt undarlegt í þessum heimi...en í seinustu viku fór ég að fylgjast með lýsingu á buxnaátskeppni sem fram fór einhvers staðar í útlöndum8|

Á döfinni: Í kvöld kíkir maður kannski e-ð út á menningarnótt. Og síðan í næstu vikur er ég að fara á austurland í göngu og á hreindýraveiðar8)

 Með hérna nokkrar myndir ú ferðinni...takið eftir ólíku landslagi á myndunum, en það var alveg magnað, maður fékk bara allar tegundir.

Lagt af stað frá Landmannalaugum

Tekin í misgripum fyrir rollu

Tók gaurinn bara í karphúsið

Pósipós

Nýbúin að vaða þessa á og alveg að krókna

Rétt áður en ég rúllaði niður brekkuna í Þórsmörk

~*Stína*~


» 6 hafa sagt sína skoðun

02.08.2006 22:12:56 / stina

Verzlunarmannahelgarplanið

Verzlunarmannahelgin nálgast og ætla ég að gera e-ð nýtt og uppbyggjandi  (fyrir mig:lol:)þessa helgi að þessu sinni. Stefnan er að ganga Laugaveginn (þ.e. frá Landmannalaugum niðir í Þórsmörk en ekki í 101;)), föstudag og laugardag, og síðan Fimmvörðuhálsinn, Þórsmörk-Skógar á sunnudeginum ef vel viðrar og ég verð ekki dauð úr hælsæri eða farin að grenja úr þreytu. En málið er samt að spáin á suðurlandinu er nú ekkert spes fyrir helgina, þannig að ég ætla að hafa plan B í rassvasanum ef þetta veður ætlar ekki að vera almennilegt á þessum slóðum:whut:

 

En fyrir þessa göngu hef ég verið að gera ýmislegt til að þjálfa mig og komast í e-ð svona form fyrir þetta svo ég verði ekki komin með tárin í augun eftir fyrstu brekkuna:cry: Ég hef meðal annars sleppt því að taka lyftuna í vinunni og geng upp á 7. hæð á hverjum degi...hélt fyrst þegar ég byrjaði á því að ég væri komin með dulin asma:(

Síðan hef ég verið að fara út að hlaupa.

Eitt sinn þá fór ég á ónafngreindan stað hérna rétt fyrir utan höfuðborgina til að fara út að skokka og fá smá ,,sveitaloft í lungun”. En svo varð mér svo hrikalega mál að pissa...og nottla ekkert klósett í grend. Ég sem er nú alin upp í sveit ákvað að kasta bara af mér vatni þarna úti í Guðs grænni náttúrunni. Skannaði nánasta umhverfi til að ganga úr skugga um að enginn væri þarna á ferli sem gæti truflað mig, hoppaði inn í næsta runna og pissaði. Þetta var þvílíkur léttir og ég gat haldið skokkinu áfram.

Þegar þessi góða hlaupatúr endaði þá bara steig ég inn í bílinn minn og keyrði heim á leið. En djöfull klæjaði mig í lærið, dísess ég hafði pottþétt fengið skordýrabit. Síðan fann ég að ég var komin með e-ð ógeðslegt kýli á lærinu inn undir buxunum...oj8| Ég kom að rauðu ljósi og bara varð að kíkja á þetta kýli. Dró buxurnar aðeins niður fyrir læri og ætlaði að skoða þetta nánar. Kom þá á harðar hlaupum á móti mér þessi hlussukónguló og stefndi að heilagri stað:!: Ég hélt ég myndi nú sturlast á þessari stundu, öskrandi og baðandi út öllum útlimum, þarna ein í bílnum, stopp á rauðu ljósi. Minnstu munaði allaveganna að ég hefði hlaupið út úr bílnum með buxurnar á hælunum. En kóngulóin endaði líf sitt í tyggjóslummu...ég meina hvað átti ég annað að gera:^)

Í seinustu viku skrapp ég í heimsókn á Selfoss til Hörpu frænku. Keyrði yfir nokkrar HRAÐAHINDRANIR, upp og niður Heiðina og þurfti að bremsa nokkrum sinnum út af vegavinnu...og alltaf heyrðust þessir rosalegu skruðningar aftan úr skottinu á Benzanum. Ég velti því fyrir mér alla leiðina hvað þetta gæti verið sem ylli þessum skarkala. Síðan þegar ég stöðvaði bílinn fyrir utan hjá Hörpu og lætin endurtóku sig, þá stóðst ég ekki mátið og kíkti aftur í skott....sem var galopið:$

~*Stína*~


» 8 hafa sagt sína skoðun

24.07.2006 10:52:20 / stina

Á fullu í júlí

Verð nú að viðurkenna að þessi síðu hefur aðeins þurft að vera í sumarfríi vegna töluverða anna hjá mér. Veit ekki hvað ég á að fara langt aftur. Kannski skemmst að segja frá því að Helgi frændi frá Kjarri varð heimsmeistari á Landsmóti hestamanna með hestinn Stála...er ég nú farin að girnast það ógó mikið að næla í folaldtoll þar;)

Fór síðan í brúðkaup Önnu Heiðar frænku og hennar heittelskaða Gulla. Þau giftu sig í Lágfellskirkju í Mosó og síðan var prýðisgóð veisla að athöfninni lokinni.

Vann 7 vaktir (7x 8 tíma vaktir) á 4 dögum...eins gott að buddan láti á sjá eftir þennan mánuð:D
Fór síðan í dagsreiðtúr með mömmu og pabba á Löngufjörum á Snæfellsnesi. Fengum yndislegt veður, frábærafjöru með gylltum sandi og hafgolu frá hafinu. Þarna þaut maður áfram á blússandi tölti og hestarnir með nett víðáttubrjálæði...þetta var nú bara eins og spænskt átarævintýri:lol:

 

Fór í nokkra daga austur í Hólaskjól í afslöppun úr höfuðborginni og til að heimsækja og hjálpa Elvu og Arnari skálavörðum. Yrðlingarnir voru heldur betur orðnir sprækir og stela allri senunni og heilla alla ferðamennina. Broddi tók sér frí í vinnu og kíkti á okkur. Fórum að veiða og í bíltúr upp í Eldgjá og að Ófærufossi, sem var frægur fyrir náttúrulega steinbrú sem hrundi nú fyrir nokkrum árum. Ég var síðan látin sprengja máv í tætlur ,,óvart”8|

Fór með stelpunum um daginn í góða veðrinu í sólbað niður á Austurvöll. Fórum í stóra sjóræningjaskipið sem var í Reykjavíkurhöfn að skoða dátana;) Fórum síðan út að borða á eftir.

Er alltaf að valda misskilningi á spítalanum þegar ég er að hringja eða fara milli deilda. Kynni mig þá alltaf og segist vera frá A-7 (sem er deildin mín). Fæ ég þá alltaf ægileg viðbrögð fólks sem virðist voða hissa og spyr: ,,Ha frá Asíu?!”....ok núna þjáist ég frekar af  tjáningarerfiðleikum með mál frekar en heyrnarleysi eins og ég þjáðist af seinasta sumar:whut:

Sit núna í 25°C og sól í garðinum heima í sveitinni. Er nú bara aðallega í afslöppun og að reyna að losa mig við strengina sem ég krækti í í fyrradag þegar við Broddi gengum á Esjuna og hlupum niður í orðsins fyllstu því ég var að verða of sein í vinnuna:( Örugglega verið nálægt því að setja nýtt met í Esjuhlaupi8)

~*Stína*~

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.07.2006 00:10:57 / stina

Rosaleg svaðilför um ÍSland

Þetta hefur gerst síðan ég bloggaði seinast: Ofurskipulagða Íslandsleiðsögnin fyrir Daninna klúðraðist á fyrsta degi. Það var þriðjudagskvöld og ég fór snemma í háttinn, 3 danskir vinir mínir voru væntanlegir til landsins kvöldið eftir. Um klukkan 1 að nóttu hringir síminn, það er Jan, einn af Dönunum. Hej Kristín, hvor er du? Ég sagðist bara vera heima og sofa.,, Já, við erum sko á Íslandi núna!” Svaraði Jan. ,, Ég hugsaði með mér, ohhh nú er hann fullur...voða fyndið Jan, sjáumst á morgun. ,,Kristín ég er ekki að djóka við erum á flugvellinum”...ég var ekki enn að kveikja, ekki fyrr en hann sagði þetta í annað sinn og þá ákveðnara. Ég fékk nottla nett sjokk, þaut útí bíl á náttfötunum og brunaði í einum grænum til Keflavíkur. Þar stóðu þeir 3, Jan, Thomas og Brian búnir með kassa af bjór. Þeir höfðu fyrir sottlu síðan breytt flugmiðunum og voru búnir að segja mér það...nokkru sinnum. Samt hafði það e-ð misfarist í heilanum á mér:$ Þeir hlóu nú bara að mér, fannst þetta vera ekta ég:haha:

 

 

Miðvikudagur: Fór með þá á Þingvelli, Geysi og Gullfoss á Benzanum. Komst að því að dempararnir að aftan voru hundónýtir. Keyrði inn í miðjan hrossarekstur á Laugarvatni. Fórum út að borða á Selfossi með Hörpu frænku og vinum hennar.

 

 

 

Fimmtudagur: Fór með strákana í Smáratorg...þeim langaði að kíkja í búðir:D Og mér hefur aldrei liðið eins og karlmanni í Smáralind þar sem ég elti þá inn í hverja búðina af fætur annarri og þeir með armanna fulla af pokum8| Þeir eru sko soldið metro;) Fór síðan með þá í Borgarfjörðinn. Fórum í ,,fjallgöngu” upp á eldfjallið Grábrók, sáum Deildartunguhver (vatnsmesti hver Evrópu), Reykholt (aðsetur Snorra Sturlusonar) og Hraunfossa. Mamma og pabbi buðu okkur síðan upp á grillaðan lax, sem pabbi veiddi nottla. Það var mikið spjallað og hlegið, og mamma og pabbi höfðu engu gleymt í dönskuni. Fengum Land Crusierinn þeirra og kíktum aðeins á lífið í henni Reykjavík.

Föstudagur: Fórum í Bláa Lónið....strákarnir fíluðu það alveg í tætlur, höfðu mikið hlakkað til að baða sig í svona náttúrulega heitu vatni. Horfðum á fótbolta niðrí bæ og tókum hrikalega vel á því á djamminu um kvöldið. Harpa frænka kom, nýkomin heim frá ½ dvöl í Danmörku, fórum út að borða og svo á djammið. Þeir slóu í gegn hjá íslenska handboltalandsliðinu, en ekki hjá íslensku stelpunum...þær vöfðu þeim algjörlega um fingur sér:klikk:

Laugardagur: Keyrðum austur. Sáum Seljalandsfoss, Skógafoss, fótbolta á Klaustri, strákarnir löbbuðu út af veitingastað og gleymdu að borga:(

 

Fórum síðan á Humarhátíð á Höfn og skelltum okkur á sveitaball. Þar var heldur betur upplifum fyrir strákana. Þeir féllu líka heldur betur í kramið hjá stelpunum úti á landi...þvílík hörzl þetta kvöld:D Gistum síðan á Hóteli á Höfn.

 

Sorgarsunnudagur:( Dagurinn byrjaði vel. Fengum okkur þynnkumat á Höfn og keyrðum af stað. Palnið var að fara í vélsleðaferð upp á Mýrdalsjökul. Við stoppuðum í Jökulsárlóni á leiðinni. Rosalega fallegt þar.

En síðan í Öræfunum gerðist það. Ég einhvern veginn sá strax að e-ð var ekki eins og það átti að vera og áður en ég vissi af var ég á harða hlaupum í djammskónum í urðinni úti við Þjóðveginn. Þarna lá maður. Öll skynfærin hjá manni fóru af stað og ég áttaði mig á að þarna hafði átt sér alvarlegt slys...mótorhjólaslys. Þarna þýddi engan tepruskap, hafnar voru lífgunartilraunir þegar í stað og síðan fór ég í það að veita eina vitninu af slysinu áfallahjálp. Þurfti fyrst að anda djúpt að mér og bíta á jaxlinn...þetta tók allt saman heilmikið á. Ég kom samt sjálfri mér heilmikið á óvart....átti varla von á að ég myndi ná að geta hugsað svona skýrt við svona aðstæður. Eftir dágóða stund kom sjúkrabíll og var mótorhjólakappinn útskurðaður látinn. Höddi#10 landsfrægur meðlimur Sniglanna. Eina sem ég get sagt er að ég votta hans nánustu og hans vinum samúð mína.

Við töfðust svo mikið við þetta leiðinlega atvik að planinu var breytt. Við keyrðum upp í Hölaskjól á Fjallabaksleið nyðri. Þar eru vinir mínir Elva Dögg og Arnar Páll skálaverðir. Á leiðinni stoppuðum við á bænum hans Arnars og Danirnir fengu að fara í fjós. Það gátu metro töffaranir úr Stór-Kaupmannahöfn. Við kipptum 2 tófuyrðlingum með. Venjan er nefnilega að hafa einhver dýr í Hólaskjóli, sem lifa villt í náttúru Íslands.

Þau voru einnig með gæsarunga. Þar grilluðum við saman og keyrðum síðan um nóttina upp í Landmannalaugar og fórum í bað. Mér leist nú ekkert á það þegar maður kom að og stakk sér nakinn ofan í laugarnar. Í ljós kom að það var gædinn okkar úr göngunni á Hnjúkinn:lol: Skemmtileg tilviljum.Gistum síðan í skála að Hólaskjóli og fannst Dönunum þetta voðalega frumstætt allt saman:haha:

Mánudagur: Fórum í vélsleðaferðina langþráðu á Mýrdalsjökulinn. Strákarnir fíluðu það alveg í ræmur. Þeir fengu að nasaþefinn á því hvernig lífið á íslenskum bóndabæjum er. Keyrðum í bæinn og fórum út að borða á Fjörukránni, sem er svona víkingaveitingastaður. Ég fékk mér t.d lunda í fyrsta sinn8) allt svona íslenskur matur þarna. Hyggede så os bare hjemme um kvöldið með bjór og skoðuðum allar myndirnar úr ferðinni.

Þriðjudagur: Kvaddi strákana:cry: Þeir voru yfir sig ánægðir með dvölina og þetta hefur verið eitt það skemmtilegasta sumarfrí sem ég hef átt. Húmorinn var alltaf uppi, enda hressir strákar þarna á ferð. Þeir ætla að bjóða mér til Danmerkur í haust að launum:D

Sumt tók á að búa með þremur strákum. T.d. þá var klósettsetan alltaf uppi:whut: en þeir eru samt algjörir herramenn og borga fyrir skvísuna í hvert sinn sem farið er út að borða eða bjóða henni á barinn:haha:

Nú er vikufríið mitt búið, en hlutirnir halda áfram að gerast....blogga fljótt aftur;)

 

~*Stína*~


» 2 hafa sagt sína skoðun

01.07.2006 11:38:36 / stina

Gæsun og bý með 3 Dönum

Dagarnir hafa nú verið ægilega svipaðir hjá mér að undanförnu; er búin að vinna alveg eins og klikkhaus til að fá frí til að gædast með Danina mína. Reyndar er alveg heill hellingur að ske í vinnunni, alltaf að lenda í e-ju rosalegu og læra alveg heilan helling. En þannig er það nú bara að allt sem gerist hjá manni í vinnunni á Landspítalanum á ekkert að fara lengra til að vernda persónurétt sjúklinga.

Ég gerði mér dagamun um daginn og tók þátt í gæsun á Önnu frænku. Við fórum í vinnuna til hennar og yfirmaður hennar faldi okkur inni á skrifstofu hjá sér. Síðan kallaði hún Önnu á beinið inn á skrifstofu og þar tókum við hana með okkur í gíslingu:klikk: Klæddum hana í einhver skrípóátfitt og létum hana sprella í fólki niðrá Austurvelli. Fórum síðan með hana upp í Nordica Spa og lugum að henni að hún ætti að kenna eróbiktíma. Strafsfólkið þar tók þátt í djókinu og þetta var alt mjög spaugilegt. En síðan endaði það bara með að hún fékk heilnudd sem við vorum búnar að borga fyrir:haha:

Eftir það var farið í sumarbústað, grillað og farið í leiki. Síðan fengum við til liðs við okkur 2 unga herramenn sem tóku kassagítarana með, við kveiktum síðan varðeld og vorum með brekkusöng:D

Komst síðan að því að stimpilklukkan góða er gædd fleiri hæfileikum. Var á eftir einum sem var að stimpla sig inn. Þá segir stimpilklukkan við hann:,, Til hamingju með daginn!!”8| Gaurinn alveg hrekkur í kút, hvernig í ansk. vissi að ég ætti afmæli í dag:!:

Núna deili ég íbúð með þremur dönskum metro gaurum frá Kaupmannahöfn. Það hefur verið hrikalega spaugilegt að sjá hvernig þá reiðir af á Íslandi. Ég er búin að fara með þá út um allt og núna erum við að fara í 3 daga ferð austur á land á Humarhátíð á Höfn og í vélsleðaferð upp á jökul:D Gæti ekki verið betra...nema að ég er soldið þunn:S

Segi ykkur betur frá dvöl Dananna minna þegar henni er lokið...tipptoppgædinn hún ég tókst aðeins að klúðra soldið mikilvægum hlutum:$

 

~*Stína*~










» 2 hafa sagt sína skoðun

21.06.2006 11:33:10 / stina

Syngjandi bíll og talandi stimpilklukka

Jæja, heil og sæl kæru vinir

Núna er ég bara að vinna eins og brjálæðingur þar til Danirnir koma eftir nákvæmlega viku. Þá fæ ég vikufrí:D Ég er búin að setja upp svo skothelda og pottþétta dagskrá fyrir þá að þessi ferð verður þeim alveg ógleymanleg8) Þetta fer allt í gegnum ferðaskrifstofuna Stína´s special Icelandic tours....fannst það hljóma e-ð svona pro:haha: og þeir þurfa bara ekki að borga krónu, annað en flugið, matur og áfengi;)

Síðan nokkrum dögum eftir að þeir hverfa af landi brott þá skelli ég mér í brúðkaup til Önnu frænku og Gulla hennar tilvonandi.

Ég er búin að fara mikið heim í sveitina. Var þar um helgina að passa gúrkurnar á meðan mamma og pabbi skelltu sér á gúrkuráðstefnu, eða e-ð svoleiðis, í Svíþjóð. Veðurguðirnir brugðu ekki út af vananum og létu rigna á 17. júní:S Ég átti samt frábæra daga heima um helgina...mikið brallað.

Komst að því að það þola víst ekki allir bílar að vera keyrt á kanta þó Benzinn þoli það. Hann er samt enn einu sinni að tapa pústinu og er enn til sölu!!!
Í tvo daga þá fór ég alltaf að heyra einhver furðuleg hjóð út úr Benzanum....sem er svo sem ekkert nýtt kannski. Nema þessi voru e-ð spes. Ég opnaði húddið og fór að róta í því en fann ekkert athugavert enda hef takmarkað vit á bílvél:$ En fór síðan að hlusta betur á þessi hljóð, sem heyrðust jafnt þó bíllinn væri í gangi eða ekki. Mér fannst þetta líkjast soldið eins og söngi8| Samt var slökkt á útvarpinu:| Ég var ekki að ná þessu... Síðan fór ég að taka til í skrjóðinum...fann ég þá ekki Mp3 spilarann minn í botni undir öllu draslinu:$

Síðan annað sem ég verð að segja ykkur frá er málglaða stimpilklukkan uppi á Borgarspítala. Hún er símalandi....með 100% leiðbeiningar um það hvernig maður á að stimpla sig inn og út, og hún segir það meira að segja á íslensku8| Ég rek allatf upp stór augu yfir hvað þessi stimpilklukka er óþarflega fullkomin....og síðan bíður hún manni góðrar helgar þegar meður stimplar sig út á föstudögum...þvílík uppörvun:lol:

 

~*Stína*~

E.s. Var næstum búin að veiða þessa gæs með berum höndum....ég held að hún hafi verið e-ð þunglynd, pottþétt misst eiginkonu sína, og vildi ekki fljúga.


» 5 hafa sagt sína skoðun

14.06.2006 23:05:13 / stina

Búin að ná mér eftir labbitúrinn á Hnjúkinn og kíkti á Roger Waters

Svo sem ekkert rosalegt sem ég hef verið að afreka síðan ég fór á Hnjúkinn. Það tók mig næstum viku að jafna mig, en ég fékk ofan í allt saman einhverja skítapest nokkrum dögum eftir fjallgönguna. Veit ekki hvort hún hefur haft einhvern þátt í því eða þá það að ég vinn á smit- og sóttvarnardeild:$

Helgin var bara ljúf og góð. Sú rólegasta í manna minnum. Kíkti á bílasýninguna í Laugardalnum og svonna. Síðan er ég alltaf með augun opin fyrir nýjum bílum og fyrir kaupendum á Benzanum mínum;)

Mitt helsta afrek vikunnar var að ég skutlaði mömmu og pabba í Egilshöllina á  tónleika Roger Waters-Dark Side Of The Moon. Lenti í eins klukkutíma umferðarteppu. Fékk síðan bílastæði alveg rétt fyrir utan Höllina:!: Ég ákvað, fyrst ég var komin þessa leið, að tékka hvort ég gæti ekki krækt mér í ódýran miða inn á B-svæðið. Mamma og pabbi voru á A en það var orðið upp selt inn a það. Ég tyllti mér í röð sem lá að miðasölunni. En þegar á leið þá var ég allt í einu komin inn í röð inn á A-svæðið...hvernig sem ég fór að því:| Mér leist núna ekkert á þetta, að þurfa að bíða í röð að nýju. En án þess að spyrja kóng né prest þá var ég tekin af e-jum dyravörðum og stimpluð inn á A-svæðið án þess að vera með neinn miða. Nú jæja, fysrt vinnubrögðin voru svona þá skellti ég mér bara ókeypis á tónleika:haha:, í stað þess að borga 9.000 kr8| Og ég sá nú alls ekki eftir því...og mamma og pabbi fóru alveg hamförum, þeim fannst svo gaman.

Er síðan í óða önn að skipuleggja túr um landið fyrir Danina mína sem koma eftir nákvæmlega 2 vikur frá deginum í dag. Þetta verður MEGA góður túr þar sem ég er skipuleggjandi, leiðsögukona og bílstjóri:haha:

Síðan var ég að setja inn myndir úr Hvannadalshnjúksferðinni og fleiri myndir. Magnaðar landslags og náttúrumyndir úr ferðinni að mínu mati: http://public.fotki.com/stina6/hnjukurinn_og_fleira/

~*Stína*~


» 7 hafa sagt sína skoðun

08.06.2006 12:56:04 / stina

Á toppi tilverunnar

2 dögum fyrir gönguna fékk ég að vita að við værum í raun og veru að stefna að því að fara á Hvannadalshnjúkinn, hæsta tind landsins, sem er skv. nýjustu mælingum 2111 m hár. Þar sem ég er alltaf til í að prófa nýja hluti ákvað ég að slá til og skella mér í þessa svaðilför, þó svo að ég hefði aldrei farið í alvöru fjallgöngu áður...eða telst Esjan með:$ Þegar ég fór að segja hinum og þessum frá því að ég ætlaði á Hnjúkinn, fór fólk að spyrja mig hvort ég væri vön og búin að æfa í nokkra mánuði fyrir ferðina...það var ég nottla ekkert búin að gera og var ekkert farið að lítast á blikuna...hvað var ég búin að koma mér út í:S

Brunaði samt austur á Klaustur á föstudagskveldinu, fékk lánaða mannbrodda, ísexi og snjóflóðaýli hjá Björgunarsveitinni, í rúmið um miðnætti, gat ekki sofnað fyrir spenningi og stressi og fór á fætur upp úr 28| Hitti hópinn minn og guidana okkar tvo um hálf 4 og lagt var í hann klukkan 5 um morguninn þann 3. júní.

Þetta var 16 manna hópur, meðtöldum 2 guidum. Annar íslenskur og hafði farið reglulega á Hnjúkinn síðan 1988, hinn Hollenskur og hafði verið leiðsögumaður í Ölpunum.

Leiðin sem við fórum kallast Virkisjökulsleið...sem NB með erfiðustu leiðunum upp, en við vorum eini hópurinn þessa helgina sem fórum þessa leið á meðan um 200 manns fóru Sanfellsleiðina sem er meira aflíðandi leið og byrjað í meiri hæð. Einnig, til að gera þetta meira spennandi, þá var þetta leiðin sem gaurarnir sem lentu í snjóflóðinu fóru í sömu viku8|...en reyndar lentu þeir í snjóflóðinu svo nálægt Hnjúknum að svo sem hver sem er hefði getað lent í flóðinu.

Hópurinn minn vildi endilega prófa e-ð nýtt, því hluti hópsins hafði farið Sandfellsleiðina og síðan er sagt að þessi leið muni verða ófær eftir örfá ár því jökullinn hefur hopað svo mikið á þessu svæði og leiðin verður brattari og illfærari.

 

Gengum því yfir Fallsjökulinn, sem er skriðjökull og upp með Virkisjöklinum, sem er einnig skriðjökull, meðfram Svínafellsfjalli. Þessi kafli gekk vel, en framhaldið var brattur jökull og meirihlutann upp þurftum við að ganga á mannbroddum,með ísöxum og bundin saman í 2 línum. Á þessum kafla gafst einn upp, gróf sig í fönn og beið á meðan við kláruðum gönguna:!: Vorum á Hádegistindum upp úr 10 og fengum okkur góða hressingu. Gegnum síðan meðfram Hvannadalshrygg þar sem snjóflóð féllu hvert ofan í annað...samt engin ægileg og fram hjá ægilegum sprungum sem loka leiðinni síðsumars. Fengum á þessum kafla svo mikla sól á okkur að það varð næstum óbærilegt, en frábært veður hélst alla ferðina. Á þessari stundu var ég farin að finna fyrir verulegri þreytu og þurfti að einbeita mér að hverju skrefi...ætlaði nú sko ekki að fara að gefast upp:whut: Gegngum síðan famhjá Dyrhamrinum og þá fljótlega blasti Hnjúkurinn við.

Fyrir neðan Hnjúkinn gerðum við smá búðir, þar ætlaði ein úr hópnum að bíða því hún treysti sér ekki í seinasta brattann upp á Hnjúkinn sem var sá mesti á leiðinni. Við sáum strauminn af fólki streyma frá Hnjúknum og fara sléttuna, Sandfellsleiðina. Græjuðum okkur fyrir lokaáfangan og héldum upp. Þetta var soldill bratti í lokinn en hafðist og við náðum toppnum um 3 leitið. Fengum frábært útsýni frá toppnum, nema þá helst í norður. Sungnar voru stökur og skálað í koníaki. Manni leið yndislega, þetta gat maður og hvað getur maður þá ekki?

Niðurleiðin gekk hraðar fyrir sig, eða 5 tímar niður á móti 10 tímum upp:haha: Snjórinn var orðinn lausari í sér eftir sólina og hitann yfir daginn. Þegar við fórum fram hjá Hvannadalshrygg þurftum við að hafa hraðann á því stærri flóð höfðu fallið og voru enn að falla við leiðina okkar. Við tókum þá sem höfðu orðið eftir á leiðinni með en aðrir voru orðnir mjög þreyttir og sárfættir. Á tímabili sagði enginn orð, allir einbeittir við að halda sínu göngutempói. Leiðin yfir skriðjöklana var endalaus en þetta hafðist og komum við að bílunum okkar klukkan 8 um kvöldið eftir 15 tíma göngu, ca 25 km í láréttu plani og 2000 m í lóðréttu plani. Vá hvað ég var fengin að þessu var lokið, ég var líka að leka niður, gat alls ekki meir...þetta hafði verið of mikið:| Mæli hér með frekar með Sanfellsleiðinni fyrir þá sem eru byrjendur í sportinu.

Fórum og grilluðum um kvöldið og fengum okkur bjór og vín. Held að allir hafði upplifað sig sem algjöra hænuhausa þegar fólk fór að finna á sér fetir 1. bjór.

En þetta var frábær dagur og góður hópur sem ég var með í för og verður þessi för án efa ofarlega í afrekabanka Stínu:haha:

 

 

~*Stína*~


» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 11